Sunday, April 22, 2012

Outfit of the day!

..sumar er komið! 
Við Mikael Leó fórum í nauthólsvíkina í gær og skemmtum okkur vel þar! Hittum svo yndislegu vini okkar og endum daginn á sundi í laugardalslauginn með pabba þar sem bjútíboltinn okkar prófaði ný og skemmtileg tæki sem vöktu mikla lukku :)

Mikael Leó var klæddur í adidas jakka sem hann fékk í sumargjöf, hvíta convers & svargráar slim gallabuxur úr englabörnum.




Eigið góðan sunnudag!
-HBÖ

Friday, April 13, 2012

Helgardraumur

Yndisleg vika að baki - vernámi í mæðra- og í ungbarnavernd er lokið, algjörlega dásamlegt!
Hellingur af verkefnum í næstu viku..
....en fyrst helgarfrí og dásamlegar fjölskyldustundir :)

Í dag var helgarkakan bökuð, ég elska mömmudraum svo ótrúlega fljótleg og klikkar ekki! Hún var því bökuð, en ég ákvað í þetta skiptið að prófa að gera hvíttsúkkulaðikrem, en bætti við smá kaffi til að minka "væmna" bragðið. Skemmtileg tilbreyting :)



Hvíttsúkkulaðikrem

150 gr Smjör
3 dl Flórsykur
150 gr Hvítt súkkulaði
2 tsk vanilludropar
2 msk kaffi

Eigið góða helgi!
-HÖ

Monday, April 9, 2012

Gleðilega páska allir saman!



..við erum búin að eiga dásamlegt páskafrí, fjölskyldustundir eru svo mikilvægar!




Litla 4 ára ljónið okkar fékk sín fyrstu gleraugu ( ray ban) fyrir páskana og er svo glaður, fínn & flottur með þau :)



Um páskana þykir okkur fjölskyldunni nauðsynlegt að baka köku - þetta er sannkallaður mömmudraumur í páskabúning :)


Vona að þið hafið átt notalega páskahátið.
Eigið góðan mánudag!
Knús -Hilma